
Ég þarf víst að éta ofan í mig fyrri blogg um Inspired by Iceland átakið. Það var víst að fá verlaun fyrir flottar auglýsingar. Ég var búinn að segja að auglýsingin væri skemmtileg en ég efaðist um árangur hennar því henni var beint að röngum markhóp. Það er reyndar hvergi talað um mælanlegan árangur átaksins, bara að átakið hafi verið skemmtilegt. Átakið var meira segja svo flott að það átti að dreifast sjálfkrafa um netið með m.a. youtube.com .. Þar var það reyndar bannað því það innihélt nekt. En samt skemmitlegt þó ég efist enn um árangur. Ég kannast amk ekki við neinn sem kom vegna myndbandsins. Eða voru þeir bara á Gullfoss og Geysir eins og allir hinir. Var svona mikil þörf fyrir því að fjölga ferðamönnum þangað? Ég hélt ekki !