27 November 2010

Hvernig er hægt að draga fram karakter sjávarþorps?


Sjávarþorpið Suðureyri ehf og Ferðamálastofa voru að klára skemmtilega samantekt um möguleika menningarheildar Suðureyrar við uppbyggingu ferðaþjónustu. Hvernig er hægt að draga fram karakter sjávarþorps var spurningin sem vinnuhópurinn lagði upp með í upphafi. Niðurstaðan var framar vonum og komu mörg verkefni upp á yfirboðið í þessari vinnu. Tólf verkefni verða unnin áfram en öll snúa þau að bættu umhverfi þorpsins sem spennandi áfangastaðs ferðamanna og ekki síst sem betri búsetukost íbúanna. Verkefnið verður kynnt frekar á spjöldum í félagsheimilinu eftir tendrun jólaljósa nú í desember. Verkefnin tólf sem vilji er að vinna áfram eru hér að neðan og þeir sem vilja taka þátt í þessum verkefnum eru beðnir að gefa sig fram í vinnuhópa. Hóparnir safna síðan styrkjum í verkefni og finna bestu leiðina til að koma verkefnum sameigilega í framkvæmd.

Verkefnin eru

1. Bætt aðgengi að þorskinum í lóninu.
2. Göngustígagerð.
3. Breyta stiga að skáldin á Þröm ( Nýr sem nær upp á Hjallaveg )
4. Minningarljós ( Nýir ljósastaurar)
5. Nostalgía við Rómarstíg ( Endurbygging á 120 ára aldamótaþorpi )
6. Menningarminjar, hlaðinn veggur við Stefnisgötu.
7. Útikennslustofa í skógrækt.
8. Endurbætur á svæði frá tjörn að höfn.
9. Veðurviti.
10. Ketill - Gistiskáli.
11. Lónið - Snerting við hafið.
12. Áningarstaðir við göngustíg.