03 May 2011

Nú kann ég ekki að reikna

Api get ég verið. Ég skil ekki einfalt reikningsdæmi. Ítrekað er sagt að Vestfirðingar greiði aðra hverja krónu sem þeir greiða í skatt til Reykjavíkur. Borga ég þá 2 krónur til Reykjavíkur og 1 krónu til Ísafjarðar og eingöngu 1 króna af 4 verður eftir á Suðueryri þar sem ég á heima ? Fer hún þá í að greiða fyrir utanaðkomandi snjómokstur og viðhald á þjóðveginum til Suðureyrar því það er það eina sem ríkið rekur hér eða er það greitt með þessum 2 krónum sem fara beint til Reykjavíkur. Hvað verður eiginlega um þessa 1 krónu sem ég ætti samkvæmt þessu að borga í skatt til Suðureyrar ? Eða er kannski hægt að fá bara það sama og aðrir fyrir skattpeninginn ?