12 August 2011
Klukkan á Sjöstjörnunni
Gerði góðverk í dag. Fór og lagaði torgklukkuna á Sjöstjörnunni sem er búin að vera stopp í nokkur ár. Margir halda því fram að þessi torgklukka hafi hrapað af himnum ofan og við á Suðureyri vorum bara svo heppin að hún hrapaði á hátíðarsvæðið okkar Sjöstjörnuna. Nei það var nú ekki alveg þannig. Ég og Einar vinur minn söfnuðum fyrir þessu og létum reysa þessa klukku sem part af samfélagsverkefni innan JC hreyfingarinnar sem við vorum saman í einu sinni. Fengum við flottann fundarhamar í viðurkenningu frá JC fyrir flott samfélagsverkefni. Við hins vegar gáfum Ísafjarðarbæ klukkusteininn sem er listaverk eftir Dýrfinnu Torfadóttur. Þar á bæ er mönnum skítsama um þessa gjöf svo maður verður víst að viðhalda gjöfinni sjálfur.
Subscribe to:
Posts (Atom)