06 June 2010

Markaðsátak Fisherman

Undanfarnar vikur hef ég unnið að nýju markaðsátaki fyrir fyrirtækið mitt Fisherman sem er með hótel, veitingahús og verslun á Suðureyri. Átakinu er beint að fólki á hraðferð um Vestfirði og markmiðið er að ná mælanlegum árangri í fjölgun ferðamanna til Suðureyrar. Átakið er kynnt með auglýsingum í fjölmiðlum, bæklingagerð og á netinu. Viðskiptavinum sem gista eða versla fyrir 5000 krónur eða meira er umbunað með gjafakorti fyrir tvo í sundlaugina á Suðureyri. Í vikunni kom líka til okkar sérmerktur bjór með skilaboðum um að skemmta sér með Fisherman á Suðureyri í sumar. Átakið höfðar meira til Íslendinga því samkvæmt markaðsrannsókn þá eru erlendir gestir Vestfjarða að heimsækja Suðureyri meira en Íslendingar. Sem dæmi þá völdu 24% erlendra ferðamanna á norðanverðum Vestfjörðum gistingu á Suðureyri í fyrra en ekki nema 3% Íslendinga. Þessu viljum við breyta með því að fjölga Íslendingum sem heimsækja og upplifa Suðureyri sem skemmtilegan áfangastað.

04 June 2010

Þjóðarátak fyrir minnihlutahóp


Inspired by Iceland átakið fór hátt í gær, mjög skemmtilegt myndband og flott aðferð til að ná samtakamætti. Hins vegar skil ég ekki af hverju skilaboðin í myndbandinu eru hönnuð fyrir minnihlutahóp. Myndbandið höfðar til fjallageita og fólks sem þorir að heimsækja nýja og ögrandi áfangastaði. Sá lífstílshópur er kallaður explorer í markaðsfræðinni og á meðfylgjandi mynd sjáið þið hvað þetta er lítill hópur. Stóri hópurinn er mainstream sem aðhyllist helst öryggi og fer ekki ótroðnar slóðir. Hvergi í myndbandinu er komið inn á efni sem höfðar til þessa stóra hóps um að það sé nokkuð örugt að koma til Íslands því eldgosinu er lokið. En samt skemmtilegt myndband.