31 July 2010

Djúsí djúpsteiktur kalkúnn

Það var þess virði að prufa að djúpsteikja kalkún. Mikil stemming og frábær matur. Þetta er bandarísk hefð sem barst mér til eyrna og þá var ekkert annað að gera en að redda pott og brennara. Einar vinur minn hafði smakkað svona og vissi hvernig átti að haga eldamenskunni. Við litum á þetta sem tilraun sem gæti farið illa en niðurstaða er sú að þetta er besti kalkúnn sem ég hef smakkað. Fyrir þá sem vilja prufa þá þarf 5 kg fugl fyrir ca 10 manns. Pott sem passar bara rétt rúmlega fyrir fuglinn og góðan gasbrennara sem hægt er að leigja hjá Steina í gúmmíbátaþjónustunni á Ísafirði. Fuglinn er settur í pottinn og vatn sett í þar til flæðir yfir fuglinn. Fuglinn er þá tekinn upp úr pottinum og vantsmagnið er mælt og sama magni er skipt út fyrir olíu. Hitið olíuna í 175°. Þerrið fuglinn og kryddið vel eftir smekk. Tveir mælar eru notaðir. Einn í olíuna og hinn í bringuna en kjarnhitinn á að vera um 75° þegar fuglinn er klár. Stingið vír í fuglinn sem notað er til að lyfta fuglinum í og úr olíunni. Það tekur um 35 mín að steikja fuglinn en athugði að hitinn fellur töluvert þegar kaldur fuglinn fer í olíuna. Svo er allur varinn góður við svona eldamensku því gaskútur og ca 15 lítrar af olíu í pott er hættuleg blanda og því valdi Einar kokkagalla við hæfi. Góðir vinir og meðlæti toppa síðan veisluna.

20 July 2010

Nostalgía á Suðureyri

Mig langar að deila með ykkur lesendum skemmtilegu verkefni sem ég hef verið að vinna að í sumar. Verkefnið kalla ég Nostalgía sem merkir söknuður eftir liðinni tíð. Verkefnið snýst um að grafa upp heimildir um fyrstu húsin sem voru byggð á Suðureyrarmölum og endurteikna þau í stafrænt form. Ég er kominn með nokkuð magn af gögnum og komin er gróf mynd af því hvernig upphaf byggðar var um aldamótin 1900. Húsin Babýlón og Rómarborg voru fyrstu íbúðarhúsin en heimildum greinir á um hvort var byggt fyrst. Babýlón var fyrsta húsið sem var byggt sérstaklega sem íbúðarhús en Rómarborg var byggt fyrr en þá sem verbúð og síðan endurbyggt sem íbúðarhús. Síðan hef ég fundið heimildir um fyrstu verslunina á Suðureyri sem var útibú Ásgeirsverslunar frá Ísafirði en húsið stóð fyrir neðan Rómarstíg og var byggt 1891. Einnig voru flottar veiðafærageymslur við Rómarstíginn sem mynduðu fyrstu götumyndina á Suðureyri. Það merkilega við þessa vinnu er að tæknilega er hægt að endurbyggja þessa flottu götumynd því engin hús standa á þessum lóðum í dag. Mig langar því að hvetja þá sem vita um heimildir eða ljósmyndir frá Rómarstígnum að hafa samband við mig svo sé hægt að endurteikna húsin eins vel og hægt er. Smellið á myndina til að sjá hana stærri.

01 July 2010

Ógn getur skapað ný tækifæri


Mig langar að deila með ykkur smá sögu sem Skoti sagði mér þegar hann heimsótti mig fyrir nokkrum árum. Hann er ferðamálafrömuður á afskertum eyjaklasa norðvestur af Skotlandi þar sem áður fyrr var blómleg útgerð en vegna alþjóðavæðingar þoldi eyjaklasinn ekki samkeppnina vegna samgönguleysis svo útgerð lagðist nánast af og fólki fækkaði. Ógn og veiklekar samfélagsins voru miklir en í markaðsfræðinni lærir maður að í öllum ógnunum og veikleikum felast tækifæri sem geta verið styrkleiki. Þessi ferðamálafrömuður hafði þá sögu að segja að Skotarnir breyttu um hugarfar og leyfðu nýjum hugmyndum að fá hlómgrunn í samfélaginu. Helsta ógnin var samgönguleysi og það leystu þeir með því að bjóða upp á spennandi sjóflug á milli lands og eyja. Þorpin þróuðu sölu á þjónustu til ferðamanna í staðin fyrir framleiðslu og í dag er útgerðin aftur farin að dafna því veitingahúsin sem hafa verið byggð upp á þessum afskertu eyjum greiða svo gott verð fyrir ferskan fisk. Fyrir áhugasama er hægt að bóka sjóflug en flugáætlunin fer eftir flóði og fjöru. Sjá frekari upplýsingar á http://www.visithebrides.com/ og http://www.flybe.com/