20 July 2010
Nostalgía á Suðureyri
Mig langar að deila með ykkur lesendum skemmtilegu verke
fni sem ég hef verið að vinna að í sumar. Verkefnið kalla ég Nostalgía sem merkir söknuður eftir liðinni tíð. Verkefnið snýst um að grafa upp heimildir um fyrstu húsin sem voru byggð á Suðureyrarmölum og endurteikna þau í stafrænt form. Ég er kominn með nokkuð magn af gögnum og komin er gróf mynd af því hvernig upphaf byggðar var um aldamótin 1900. Húsin Babýlón og Rómarborg voru fyrstu íbúðarhúsin en heimildum greinir á um hvort var byggt fyrst. Babýlón var fyrsta húsið sem var byggt sérstaklega sem íbúðarhús en Rómarborg var byggt fyrr en þá sem verbúð og síðan endurbyggt sem íbúðarhús. Síðan hef ég fundið heimildir um fyrstu verslunina á Suðureyri sem var útibú Ásgeirsverslunar frá Ísafirði en húsið stóð fyrir neðan Rómarstíg og var byggt 1891. Einnig voru flottar veiðafærageymslur við Rómarstíginn sem
mynduðu fyrstu götumyndina á Suðureyri. Það merkilega við þessa vinnu er að tæknilega er hægt að endurbyggja þessa flottu götumynd því engin hús standa á þessum lóðum í dag. Mig langar því að hvetja þá sem vita um heimildir eða ljósmyndir frá Rómarstígnum að hafa samband við mig svo sé hægt að endurteikna húsin eins vel og hægt er. Smellið á myndina til að sjá hana stærri.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment