26 September 2010

Akureyri, takk fyrir mig


Jæja þá þá er búslóðin komin í gáminn og á leið aftur vestur í íbúðina okkar þar. Okkar verkefnum hjónanna á Akureyri er lokið í bili og ný og spennandi verkefni taka við. Það var mjög gaman að kynnast Akureyri og öllum þeim lífsins gæðum sem bærinn hefur upp á að bjóða, flott samfélag. Akureyri, takk fyrir mig.

21 September 2010

Vottanir eru að tapa trúverðugleika

Ég var að lesa á netinu að 75% karlmanna í Bandaríkjunum taka ekki lengur mark á umhverfivænum merkingum á vörum þar í landi vegna þess að stórfyrirtækin hafa verið að misnota vottanir til að bjarga andlitinu tímabundið, kallað green washing. Frekar sérstakt en þegar ég horfði á heimildamyndina Food inc í gær þá var ég ekkert lengur hissa. Ameríkaninn er greinilega búinn að missa tökin á matvælaframleiðslu sinni og það svakalega. Nú skilur maður betur hvaða styrkleika Íslendingar eiga í framleiðslu matvæla. WholeFoodMarket er það fyrirtæki í Bandaríkjunum sem talað er um að sé nýja stórveldið í matvæladreifingu heimsins. Þeir eru með einföld markaðsskilaboð. Þeir svara spurningum viðskiptavina um hvaðan maturinn þeirra kemur og hvernig hann er framleiddur. Þetta virðist vera lykilatriði í dag miðað við umfangsmikið klúður í massaframleiðslu Bandaríkjamanna. Íslenska lambið er komið inn í verslanir WFM og sjáið á meðfylgjandi myndbandi hvað sérstaðan er mikil borið saman við myndina Food inc.


11 September 2010

Hvalstöðvarhús á Suðureyri


Um aldamótin 1900 var hvalstöð á Uppsalaeyri í Seyðisfyrði við Djúp. Starfsemi var hætt þar vegna ofveiði og var stöðin tekin niður og flutt á brott. Ásgerisverslun á Ísafirði átti hlut í þessari hvalstöð og einnig rak verslunin útibú á Suðureyri. Aðalstöðvarhúsið var tekið niður á Uppsalaeyri og flutt til Suðureyrar 1908. Þar var það endurbyggt við Stefnisgötu 13 sem í dag er við hliðina á körfuboltavellinum á Ísversplaninu. Þetta hús var einingarhús frá Noregi, úr timbri og þriggja hólfa. Á Suðureyri var húsið notað sem verslun og á efrihæð var innréttuð íbúð fyrir verslunarstjórann. Húsið skipti oft um eigendur og var það í eigu Ísvers hf þegar það brann í apríl 1953. Í frásögnum er talað um að húsið hafi verið veglegt og vel byggt hús. Ef tekið er mið af verðmæti þess sem sagt er frá miðað við vinnulaun á þeim tíma hefur húsið verið yfir 700 milljóna króna virði í dag ef miðað er við núverandi meðallaun verkamanns. Áður en þetta hús var byggt hafði Ásgeirsverslun stundað verslun í upphaflegu verslunarhúsi rétt ofar í götunni sem var eingöngu 13 m2 og einnig í Krambúðinni sem stóð hinum megin við götuna.