19 March 2012

Flugvöllinn burt úr Vatnsmýrinni


Ég sá í fréttum um daginn að Fjórðungssamband Vestfirðinga sem er SkýrslugerðarstofnunsveitarfélagaáVestfjörðum fyrir þá sem vita ekki hvað hitt apparatið merkir, var enn einu sinni að andmæla breytingum á flugi til Reykjavíkur. Rök eins og að hann yrði að vera vegna sjúkraflugs þegar Íslendingar eru full færir að nota þyrlur og að það mætti ekki leggja flug til Reykjavíkur niður vegna ferðaþjónustunnar og nefndu þeir veiðimenn sérstaklega. Ég hef nú bara ekki heyrt annað eins bull. Fyrir ekki svo löngu lét Vaxtasamningur Vestfjarða eina milljón í hagkvæmisathugun á flutningi ferðamanna frá Evrópu til Vestfjarða og vann hinn armur SkýrslugerðarstofnunarsveitarfélagaáVestfjörðum Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða skýrslu sem leiddi í ljós að Reykjavíkurflugvölur væri að valda ferðaþjónustu á Vestfjörðum töluverðu tjóni. Mikið hagræði er í því að færa flug með ferðamenn til Keflavíkur. Ég á þessa skýrslu til fyrir áhugasama. Ok, við getum flest verið sammála um að það er þægilegt að fljúga til Reykjavíkur og lenda þar í miðbænum. En af hverju má ekki ræða kostina sem koma með því fyrir okkur út á landi að fá að komast beint inn á Keflavíkurflugvöll þar sem er miðstöð þjónustu við alheiminn. Hugsið ykkur tækifærin fyrir okkur og sem dæmi ferskar vörur sem geta fengið að komast óhindrað beint út í heim, í stað þess að þvælast um í Reykjavík til að hækka flutningsgjöld í báðar áttir. Við Vestfirðingar verðum miklu betur sett þegar við fáum almennilega tengingu við alheiminn frekar en að lenda inn í miðbæ Reykjavíkur sem alla tíð hefur ekkert annað gert en að hirða af okkur skatttekjur og auðlindir án þess að þakka fyrir sig. Verum framsýn og horfum frekar á alheiminn sem okkar þjónustusvæði frekar en smáríkið Reykjavík. Við höfum ekkert þangað að sækja nema ofgreidda skatta.

No comments: