23 May 2010

Hver er framtíðarsýn samfélags ?


Nú streymir inn kosningaráróður fullur af slagorðum og loforðum um bætt samfélag. Mitt mat er að þessi aðferð til að ná til fólks sé útrunnin. Það er ekkert spennandi og skemmtilegt við núverandi framsetningu nema Besti flokkurinn, hann er skemmtilegur. Kjósendur eru að leita að spennandi framtíðarsýn sem það getur hugsað sér að taka þátt í að byggja upp. Framtíðarsýnin er ekki trúverðug þegar hún er sett fram með slagorðum eða einföldum frösum. Hana þarf að setja fram á myndrænan hátt svo fólk skilji leikmyndina sem framboði stefna að. Framtíðarsýn þarf einnig að vera byggð á mælanlegum markmiðum eins og stefnumótun er unnin hjá öllum öðrum en hjá pólitískum framboðum. Smart aðferðafræðin við markmið framboðana gæti líka komið framboðum vel í sinni vinnu.
S = Skýr og skiljanleg.
M = Mælanleg, þú verður að vita hveænær árangri hefur verið náð.
A = Alvöru, þú verður að geta náð þeim.
R = Raunhæf, það má ekki taka of langan tíma að ná þeim.
T = Tímasett, það þarf að setja upphaf og lokatíma á öll markmið.

21 May 2010

Jón Ólafsson er snillingur


Á visir.is í dag er greint frá frábærum samningi Icelandic Glacial við Hilton hótelkeðjuna í Bandaríkjunum. Jón Ólafsson hefur gert hluti sem aðrir virðast ekki vera að gera með Íslenskt vatn. Stundum er talað um 111 regluna í markaðsfræði sem á greinileg við í hans dæmi. Reglan er þannig að maður fær 1 stig fyrir að koma með hugmynd, 10 stig fyrir að framkvæma hugmyndina en 100 stig fyrir að selja hana enda skiptir það mestu máli.

15 May 2010

Besti Flokkurinn vill fíkniefnalaust Alþingi fyrir 2020

Þetta myndband er bara snilld. Nýjustu kosningarloforðin eru samkvæmt þessu... fíkniefnalaust Alþingi fyrir 2020 og fækka öllum jólasveinum niður í einn. Jón Grarr kann þetta enda búin að vinna á einni af bestu auglýsingastofu landsins lengi, EnnEmm. Það er sama stofan og gerði vin minn hann Bobby Fisherman sem margir kannast við.

09 May 2010

Largest Company - Kaupthing Bank

Er þessi ekki vel við hæfi núna.