05 December 2010

Hvað er Ísafjarðarbær ?


Smá innlegg um skjaldamerki Ísafjarðarbæjar. Undanfarin ár hef ég verið að læra markaðsfræði með áherslu á vörumerkjastjórnun áfangastaða, eða "destination branding". Til eru tvær leiðir til að gera skjaldamerki. Önnur er að gera myndmerki og hin leiðin er vörumerki. Fyrri leiðin er mun einfaldari en dýrari og er oftast talað um að slík merki sem tákn um lítið sjálfsálit. Bara að teikna fallegt merki og prenta á þar til gerða hluti. Hin leiðin, vörumerkjastjórnun er þróað ferli og mun árangursríkari fyrir kynningu á samfélaginu sem vörumerkið stendur fyrir og kostar minni pening þegar uppi er staðið.

Þegar vörumerki er hannað er oft notað verkfæri sem er kallað áttaviti. Hann byggir á átta þáttum sem mynda staðfærslu vörumerkis. Staðfærslan gengur út á að staðsetja vörumerki í huga viðskiptavina með aðgreinandi þáttum til að móta ákveðna ímynd um hvað er Ísafjarðarbær. Þeir þættir sem teknir eru fyrir í áttavitanum eru nafn, þjónustuframboð, markmið, loforð, persónuleiki, gildi, viðskiptavinir og framtíðarsýn. Þegar þessi atriði hafa verið tekin saman kemur upp staðfærsla merkis sem endurspeglast í merkinu sjálfu og slagorðum þess. Bestu merkin koma þessum skilaboðum á framfæri á einfaldan hátt sem stök mynd eða slagorð eins og Akureyri - Öll lífsins gæði.

Síðan er gerð markaðshandbók sem er reglubók um notkun á vörumerkinu. Þar eru teknir fyrir þættir eins og litaval, leturgerðir, framsetning efnis og myndaval sem byggir á niðurstöðu áttavitans. Þessar reglur þarf að vanda til að einfalda og sameina skilaboð sem á að koma á framfæri. Í vinnuferlinu er líka hægt að taka fyrir stefnu um markaðssamskipti þar sem teknir eru fyrir mismunandi lífstílsmarkhópar fyrir mismunandi þjónustuþætti sem samfélagið er að kynna.

No comments: