Levi í Finnlandi var lítið bændasamfélag með um 200 íbúa fyrir 30 árum síðan. Einn íbúinn

byrjaði með bændagistingu sem varð að hóteli, hótelið keypti nokkra vélsleða og svo koll af kolli. Levi er byggðakjarni í sveitarfélagi sem telur í dag um 6000 íbúa. 1000 íbúar búa núna í byggðakjarnanum Levi. Það fjölgaði því um 800 íbúa á 30 árum aðallega vegna uppbyggingar ferðaþjónustu. Bæjarfélagið átti litla skíðabrekku sem er um 300 metra löng með enga sérstöðu og var hún bara notuð fyrir héraðsbúa. Í dag eru 15.000 veitingastólar og 23.000 rúm í Levi fyrir ferðamenn. Já tuttugu og þrjú þúsund rúm og þeim fjölgar um 1000 rúm að meðaltali á ári í dag. Það sem er að valda þessari miklu

uppbyggingu er að myndaður var klasi þjónustuaðila sem setti sér 30 ára stefnumótun um markvissa uppbyggingu. Saman notar hópurinn sameiginlegt vörumerki og sterkta BRANDING vinnu sem stýrt er af Levi sale and marketing office sem er í 14% eigu bæjarfélagsins og restin er í eigu þjónustuaðila. Allir kynna sína þjónustu undir einum hatti og vöruþróun á viðburðum og virðisaukandi þjónustum er það sem drífur þetta öfluga samfélag áfram. Ferðamenn finna nánast allt í þessu litla þorpi sem geri
r heildarupplifun þeirra svo einstaka. Samvinnan er lykillinn. Meðfylgjandi myn

dir segja
meira en þúsund orð.