Ég fór á pósthúsi Jólasveinsins í Finnlandi um daginn og hitti þar Jóla sjálfan. Mikið var að gera því pósthúsið hans er orðið hið opinbera pósthús fyrir öll bréf sem póstlögð eru í heiminum til

Jóla. Finnar borga Jóla fyrir að svara öllum bréfum sem berast til hans enda er þetta sérkennilega pósthús orðið eitt helsta aðdráttarafl ferðamanna til borgarinnar Rovaniemi þar sem pósthúsið er. Örstutt frá pósthúsinu er heimili Jólasveinsins. Það er staðsett í neðanjarðarbyrgi sem getur hýst 3600 manns ef kemur upp hættuástand í borginni. Þetta neðanjarðarbyrgi er ein flottasta ferðamannagildra sem ég hef séð. Allt hannað fyrir fjölskylduna til að eiga eftirmynnilega stund saman. Klakasalur, veitingarými, föndurherbergi, piparkökukaffihús ofl. Þetta risavaxna mannvirki er eingöngu opið í 6 vikur á ári en þess á milli vinnur fólkið við sölu og markaðsmál fyrir næstu vertíð. Eigandinn

er háskólamenntaður Jólasveinn og fræddi hann okkur um þá staðla og reglur sem Finnar hafa sett um Jóla og einnig að þeir hafa náð að fá vörumerkið Santa Claus sem skrásett vörumerki í þeirra eigu.
No comments:
Post a Comment