20 February 2011

Vestfirðir vs/ Lappland



Undanfarna viku hef ég verið með skemmtilegu fólki úr ferðaþjónustunni á Íslandi í Lapplandi til að kynnast hvernig Finnar hafa byggt upp sína vetrarferðaþjónustu. Þetta var mörgu leiti eins og að stíga inn í framtíðina hér fyrir vestan. Maður stendur á gati eftir svona ferð þegar maður sér hvað hægt er að gera úr ekki neinu. Íbúar í Lapplandi hafa tekið sína helstu veikleika sem voru samgönguleysi, frosthörkur og myrkur til endurskoðunar. Nýtt og breytt hugarfar hefur leitt þetta fólk saman og nú hafa þau snúið sínum ógnum og veikleikum í tækifæri og í sína bestu styrkleika. Rétta orðið er stóriðja. Að sjá sjálfstraustið og virðingu heimamanna fyrir sínu var ógleymanlegt og getur maður ekki annað en öfundað Finna miðað við hvar ferðaþjónusta á Vestfjörðum stendur. Aðstæður í Lapplandi voru við upphaf uppbyggingar ferðaþjónustu mun verri en á Vestfjörðum en Lappar eru komninr 20-30 árum á undan okkur með flest allt í dag. Næstu daga mun ég segja frá þessari sérstöku ferð hér á blogginu. meðfylgjandi er ein skemmtileg mynd af saunaklefa sem er áfastur kláf sem gengur upp og niður fjallið sem er 719 metrar. Hin myndin er af VIP klefa í sama kláf.

No comments: