15 April 2010

Áfengi á Alþingi


Ég heyrði skemmtilega samlíkingu um Alþingi og áfengisframleiðendur nýlega. Nú hefur verið lagt fram frumvarp um að herða á banni við áfengisauglýsingum. En af hverju skil ég ekki. Áfengismarkaðurinn á Íslandi er mettur markaður og framleiðendur eru eingöngu að auglýsa sig til að fá stærri sneið af kökunni. Ekkert bendir til aukinnar neyslu. Sama á um Alþingi, það er líka mettur markaður með 63 þingmenn. Ekkert bendir til fjölgun þingsæta þó þeir auglýsi meira. Af hverju þurfa stjórnmálaflokkar þá að auglýsa á mettum markaði ef þeir telja að aðrir mettaðir markaðir þurfi þess ekki ?

No comments: