
Alkemistinn er flottur þáttur um markaðsmál á ÍNN sem einnig er hægt að nálgast hér á netinu. Mæli með honum. Friðrik Eysteinsson er með flott innlegg í hvern þátt þar sem hann útdeilir annað hvort lofi eða asnasparki vikunnar. Nýjasta asnasparkið er tvöfalt. Forseti Íslands fær fyrra sparkið fyrir að hræða útlendinga við nýju eldgosi í Kötlu. Seinna er fyrir að reyna að réttlæta þetta fyrir þjóðinni og segja að hann hafi ekki verið að hræða þá heldur bara að vara þá við. Skoðið myndina, líklega hægt að finna skemmtilega asna á þessu hóteli.
No comments:
Post a Comment