30 April 2010

Markaðsetning áfangastaða

Áfangastaður getur verið land, svæði, borg, bær, gata eða jafnvel stök bygging. Markaðsvinna tengt uppbyggingu áfangastaða byggir á þekktum markaðsaðferðum. Skilgreind hafa verið þrjú lykilatriði og þrjú atriði sem ber að varast í þeirri vinnu.

Lykilatriðin þrjú eru.
  1. Uppbygging áfangastaða er langtímaverkefni.
  2. Samvinna á milli þeirra sem hafa fjárhagslegan ávinning.
  3. Sterk framtíðarsýn og skipulagt markaðsstarf.

Þrjú atriði sem þarf að varast.

  1. Að reyna að gera allt fyrir alla.
  2. Að ofselja væntingar umfram raunverulega getu.
  3. Að einblína of mikið á auglýsingar frekar en fjárhagslegan ávinning.

No comments: